Góð loftræsting er lykillinn að heilbrigðu og þægilegu heimili.
Með nútímalegum loftræstikerfum sem sameina varmaendurvinnslu, rakastýringu og snjalla sjálfvirkni tryggirðu ferskt loft allt árið um kring – án þess að fórna orkusparnaði.
Við bjóðum þrjár sérhæfðar lausnir sem henta fjölbreyttum rýmum og þörfum:
Airobot – snjöll loftræstikerfasamstæða með skynjurum, varmaendurvinnslu og rakendurheimt.
HRV-eining – einfalt og hagkvæmt kerfi með varmaendurvinnslu.
AHRP160 – öflug og sveigjanleg eining með þráðlausri tengingu,appi og raka og hitanema
Airobot
Airobot er snjallt samstæðu loftræstikerfi með varma- og rakaendurvinnslu, hannað fyrir norrænt loftslag.
Með samþættum skynjurum fyrir CO₂, VOC, rykagnir, hitastig og rakastig, greinir það loftgæði í rauntíma og stillir sjálfkrafa loftflæði til að tryggja heilnæmt inniloft. Kerfið býður upp á allt að 90% varmaendurheimt og 80% rakaendurheimt, sem stuðlar að orkusparnaði og þægilegu inniloftslagi.
Airobot er hljóðlátt, auðvelt í viðhaldi og hægt að stjórna með snjallsímaforriti.
Lunga - Varmaskipti vifta Ø 100-125mm
Orkusparandi loftræstikerfi með varmaendurvinnslu sem dregur úr varmatapi með því að nýta varma úr útblástri til að hita innblástursloftið. Tækið skiptir á 60 sek fresti um blástursstefnu sem tryggir stöðuga og skilvirka loftræstingu við stöðugt hitastig.
AHRP160 Plus Ø 160mm. Flottasta Lungað á markaðnum
Ný kynslóð af lungum til loftræstingar með keramik varmaskipti og háþróaðri sjálfvirkni. AHRP160 býður upp á þráðlausa tengingu milli margra eininga og sveigjanlega stillingu á loftræstiham, allt án snúrutenginga milli tækja.
