Blikklausnir - Blikksmíði
Verkvit og fagmennska

Blikksmíði

Frá málmplötu til mannvirkis – hvað gerir blikksmiður?

Hvað er blikksmíði?

Blikksmíði er iðngrein þar sem unnið er með málmplötur – aðallega þunnar stál- eða álblikkplötur – til að móta, klippa, beygja og festa saman í ýmis form og hluti. Þetta er mikið sérhæfð vinna sem krefst nákvæmni og kunnáttu í meðhöndlun málma og notkun sérhæfðra verkfæra og tækja.

Blikksmiðir smíða og setja saman fjölbreytta hluti, bæði fyrir byggingariðnað og aðra notkun. Blikksmiðir smíða meðal annars:

  • Þakrennur og niðurföll

  • Loftstokkakerfi (fyrir loftræstingu)

  • Þakklæðningar og áfellingar

  • Sérsmíði

  • Sérsmíðaðir hlutir fyrir vélar og tæki

Hvernig vinnur blikksmiður?

Blikksmiðir nota fjölbreytt tæki og aðferðir til að ná nákvæmum og öruggum árangri, meðal annars:

  • Klippur (sax), beygjuvél, skurðarvélar lásavélar ásamt mörgum öðrum vélum.

  • Suðuvélar til að sjóða málm saman

  • Tölvustýrð tæki (t.d. CNC-laser vélar) í stærri framleiðslu

  •  

Í hvað er blikksmíði helst notuð?

  • Byggingar og mannvirki: Þak og veggklæðningar, rennur og loftræstikerfi.

  • Iðnaður og verkfræði: Sérsmíði íhluta í vélbúnað eða loftræstikerfi.

  • Bíla- og skipaiðnaður: Hlutar í yfirbyggingar, hlífar og einangranir.

  • Húsgagnagerð: Sérsmíðaðir málmhluti í húsgögn eða innréttingar.

  • Listræn smíði: Skreytingar, skilti, listar eða aðrir fagurfræðilegir hlutir.

  •