Airobot sameinar loftræstingu, gólfhitastýringu, skynjara, raka og app í eitt kerfi sem vinnur saman fyrir heilnæmara inniloft, stöðugri þægindi og betri yfirsýn yfir heimilið.
Loftræstisamstæðan sér ekki aðeins um að skipta út lofti. Hún mælir stöðugt loftgæði og bregst sjálfvirkt við breytingum á CO₂, raka, VOC-efnum og fínum rykögnum eins og PM2.5. Þegar þörfin eykst hækkar kerfið loftflæðið, og þegar aðstæður eru góðar getur það keyrt rólegar.
Með varmaendurheimt er hitinn í útblæstrinum nýttur til að forhita ferskt innblástursloft. Þannig fær heimilið ferskara inniloft án þess að fórna þægindum eða eyða óþarfa orku.
Airobot hitastýringin gerir mögulegt að stilla hita nákvæmlega eftir rýmum. Snjallir 230V og 24V hitastillar, herbergisstýringar og skynjarar vinna saman svo hvert herbergi fái þann hita sem þar er þörf fyrir.
Kerfið hentar fyrir hefðbundinn gólfhita og rafmagnshita í gólfi. Þar sem rafmagnshiti er notaður er hægt að tengja relay-lausn fyrir viðeigandi álag og örugga stýringu.
Stærsti kosturinn við Airobot vistkerfið er að loft og hiti eru ekki stök kerfi sem vita ekkert hvort af öðru. Ef loftgæði breytast, raki hækkar eða herbergi þarf meiri eða minni orku, getur kerfið brugðist við sem ein heild.
Í stað þess að loftræsta öll rými eins og þau séu alltaf í sömu notkun er hægt að stýra loftflæði eftir þörf. Sama hugsun gildir um gólfhitann: svefnherbergi, baðherbergi, alrými og vinnurými geta haft mismunandi kröfur um hitastig, raka og loftgæði.
Airobot getur verið hluti af stærri lausn þar sem rakastýring, eftirhitari eða kæling/fan coil kemur við sögu. Það fer eftir húsnæði, lagnaleiðum og því hvaða markmið eru sett fyrir þægindi og orkunotkun.
Í Airobot appinu má fylgjast með loftgæðum, hita og raka, breyta stillingum og fá yfirsýn þótt þú sért ekki heima. Þannig verður kerfið sýnilegt, skiljanlegt og einfalt í daglegri notkun.
Airobot hentar sérstaklega vel þegar horft er á inniloft og hitakerfi saman frá byrjun, en getur einnig verið góður kostur í endurbótum þar sem bæta á loftgæði, stýringu og þægindi. Blikklausnir fara yfir aðstæður, stærð kerfis, lagnaleiðir og hvaða búnaður passar best við húsið.
Já, með réttum herbergisstýringum og búnaði er hægt að stýra gólfhita eftir rýmum og tengja hann við heildaryfirsýn kerfisins.
Já, Airobot býður upp á lausnir fyrir rafmagnsgólfhita, meðal annars með relay-stýringu þar sem það á við.
Nei, Airobot vistkerfið getur tengt loftræstingu, hitastýringu, skynjara og app saman án þess að bæta þurfi við sérstöku snjallheimakerfi.
Hvort tveggja getur komið til greina. Best er að meta húsnæðið, lagnaleiðir, núverandi hitakerfi og væntingar til loftgæða áður en endanleg lausn er valin.